
Stofnað 1996 og erum því 30 ára á þessu ári !!
Til að panta lok:
Við erum á fullu að klára vefsíðuna okkar en núna er hægt að panta dósalok með því að senda póst á dosalok@trt.is. Verðið á ómerktum lokum er 1000 kr. stk. með vsk.
Mundu að taka fram hvernig dós lokið á að passa á þannig að við getum svarað þér sem fyrst með verði og öllum upplýsingum.
Hægt er að prenta stuttan texta og/eða einfalda mynd á lokin, t.d. nöfn eða lógó. Verðið á sérhönnuðum lokum er 1240 kr. stk. með vsk. miðað við 100 stk.
Lokin verða til sölu hjá helstu útsölustöðum drykkjarfanga þegar samningar nást um það.
Áttu nú þegar lok?
Til hamingju með nýja lokið þitt! Dósalokið er hannað og þrívíddarprentað hjá TRT á Íslandi og er höfundarréttarvarið. Efnið í lokinu er matvælavottað og má fara í uppþvottavél (hiti undir 70°C).
Lokið veldur því að drykkurinn helst ferskur lengur og það fer ekki allt út um allt ef dósin fer á hliðina í stutta stund. Og það komast engar pöddur ofan í dósina þegar lokið er á. Alltof margir hafa fengið geitung ofan í dós og verið stungnir illilega í munnholið sem getur verið hættulegt.
Athugaðu að lokið þitt gæti passað á fleiri dósir en það sem það var framleitt fyrir.
Við framleiðum lok á fjöldan allan af dósum og upplýsingar um hvernig má panta eru í textanum hér til hliðar.
TRT – Hvað er í boði?
Hér hjá TRT kennir ýmissa grasa. Við sérhæfum okkur í þrívíddarhönnun og prentun. Við getum framleitt hluti úr mörgum plastefnum, allt frá hörðu og hitaþolnu yfir í mjúkt og matvælavottað plast. Hægt að hafa samband á 3D@trt.is.
Einnig erum við með tvo tölvusérfræðinga með samanlagt yfir 50 ára reynslu í tölvuþjónustu, allt frá flókinni forritun í mörgum forritunarmálum yfir í almenna notandaþjónustu eins og aðstoð með prentara, uppsetningu á nýjum tölvum o.s.frv. Hægt að hafa samband á tolvur@trt.is.
Að auki bjóðum við upp á ritaraþjónustu með sérhæfingu í læknaritun. Ritarar eru löggiltir heilbrigðisgagnafræðingar og með áratuga reynslu í ritun fyrir heilsugæslu, einkalæknastöðvar og sérfræðilækna. Hægt að hafa samband á ritun@trt.is.